Spaghetti í rauðvínslagaðri kjötsósu

Hráefni

250 g spaghetti

500 g nautahakk

Ólífu olía

1 laukur

1 gulrót

2-3 hvítlauksgeirar

650 ml pasta sósa

1 msk ítölsk kryddblanda (oregano, timjan, basil)

1/8 tsk þurrkað chillí

1 dl rauðvín

Salt og pipar

Parmesan

Ferskt basil

 

Aðferð

Sjóðið spaghetti samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum.

Skerið laukinn og gulrótina niður og steikið á pönnu upp úr ólífu olíu.

Bætið nautahakkinu út á pönnuna og steikið það í gegn.

Skerið hvítlaukinn eða pressið í gegnum hvítlaukspressu og steikið létt, bætið svo pastasósunni út á. Kryddið til með ítalskri kryddblöndu, chillí. Bætið rauðvíninu út á og blandið saman, kryddið með salti og pipar og smakkið til. Látið suðuna koma upp og leyfið að malla rólega í 4-5 mín. Bætið spagettíinu út á og blandið saman.

Berið fram með parmesan og fersku basil.

Vinó mælir með: Adobe Reserva Carmenere með þessum rétt.

Uppskrift: Linda Ben