Ofnbökuð langa með krösti í rjómaostasósu

Uppskrift fyrir 4

Hráefni

600 g langa (einnig gott að nota t.d. þorsk eða ýsu)

Ólífuolía

250 g sveppir

1 dl blaðlaukur, smátt saxaður

½ -1 dl hvítvín, ég notaði Ramon Roqueta Macabeo Chardonnay

1-2 hvítlauksrif, pressað eða rifið

200 g sólþurrkaðir tómatar, skornir í strimla

1 hreinn Philadelphia rjómaostur

2 dl rjómi

1 dl parmigiano reggiano

1-2 msk ferskt dill, smátt skorið

Salt & pipar

100 g spínat

1 dl mozzarella ostur

6 dl Eat real hummus chips creamy dill (2,5 dl mulið snakk)

Aðferð

Byrjið á því að skera lönguna í bita og kryddið með salti og pipar. 

Skerið sveppi og blaðlauk smátt og steikið upp úr ólífuolíu.

Bætið hvítvíninu saman við og hrærið. 

Hrærið hvítlauknum, sólþurrkuðu tómötunum, rjómaostinum, rjómanum og parmigiano reggiani út í. Kryddið með fersku dilli, salti og pipar.

Í lokin blandið þið spínatinu saman við og hrærið.

Leggið löngubitana í eldfast mót og blandið saman við sósuna. Dreifið rifnum osti yfir.

Myljið snakkið í matvinnsluvél eða setjið í lokaðan poka og rúllið yfir það með kökukefli og dreifið yfir réttinn.

Bakið í 18 – 20 mínútur við 190°C eða þar til fiskurinn er eldaður í gegn. Gott að bera þetta fram með kartöflubátum eða hrísgrjónum.

 

Vinó mælir með: Ramon Roqueta Macabeo Chardonnay með þessum rétt.

Uppskrift: Hildur Rut