Blómkáls taco með BBQ sósu og hrásalati

Uppskrift fyrir 3-4

Hráefni

Street taco frá Mission (Mæli með þremur taco á mann)

Ólífuolía

400-500 g blómkál

1½ dl Heinz Sweet Barbeque sósa

½ tsk laukduft

½ tsk hvítlauksduft

½ tsk saltflögur

¼ tsk pipar

Hrásalat

300-400 g hvítkál

6 msk Heinz majónes

2-3 msk jalapeno

Avókadóstappa

2-3 avókadó

½ lime

Salt & pipar

Ferskur kóríander eftir smekk, smátt skorinn

Aðferð

Byrjið á því að skera blómkálið smátt. Skolið það og þurrkið vel.

Blandið bbq sósunni vel saman við og kryddið.

Dreifið í eldfast mót og bakið í kringum 15 mínútur við 190°C.

Blandið saman majónesi og jalapeno með töfrasprota. Einnig gott að smátt saxa jalapeno og blanda því saman við majónesið með skeið.

Skerið hvítkálið smátt og hrærið saman við jalapeno majó.

Stappið avókadó og blandið saman við safa úr lime, salt og pipar.

Steikið tortillurnar uppúr ólífuolíu þar til þær verða gylltar og smá stökkar.

Dreifið hrásalatinu á tortillurnar, því næst blómkálinu og að lokum avókadóinu. Stráið kóríander yfir og njótið!

 

Vinó mælir með: Corona með þessum rétt.