Stökkt og bragðmikið kjúklingasalat

 

Hráefni

6 úrbeinuð klúklingalæri

Kjúklingakryddblanda

1 búnt grænkál

1 stk gulrót

1 stk rauð paprika

1 stk rautt epli

1 msk furuhnetur

1 dl fetaostur

Hvitlaukssósa

 

Aðferð:

 

Kveikið á ofninum og stillið á 200°C og undir+yfir.

Kryddið kjúklingalærin vel með kryddinu, setjið þau í eldfastmót og bakið þar til þau eru elduð í gegn, u.þ.b. 30 mín.

Á meðan kjúklingurinn er inn í ofninum, skerið þá grænmetið og eplið smátt niður, flysjið gulræturnar í strimla með grænmetisflysjara.

Raðið grænmetinu á disk, skerið kjúklinginn smátt niður og dreifið yfir.

Dreifið furuhnetum og fetaosti yfir salatið og berið fram með hvítlaukssósu.

Vinó mælir með: Adobe Reserva Sauvignon Blanc með þessum rétt.

Uppskrift: Linda Ben