Langtímaeldaður ítalskur nautapottréttur með parmesan perlubyggi

Hráefni

Nauta chuck, 500 g / Hægt að panta hjá kjötbúðum með smá fyrirvara

Rauðvín, 1 dl

Perlulaukur, 10 stk

Gulrót, 150 g

Rófa, 250 g

Hvítlaukur, 10 rif

Steinselja, 10 g

Rósmarín fersk, 8 g

Sítrónu timían, 5 g / Eða garðablóðberg

Kjötkraftur duft, 1 msk / Oscar

Tómatpúrra, 2 msk

Balsamedik, 2 msk

Perlubygg, 1,5 dl

Parmesan ostur, 10 g

Sítróna, 1 stk

 

Aðferð

Skerið kjötið í bita og veltið upp úr olíu og salti. Skrælið perlulauk og hvítlauksrif. Skrælið rófu og skerið í munnbitastærðir ásamt gulrótum.

Hitið olíu í potti við meðalháan hita og brúnið kjötið vel á öllum hliðum. Þetta er best að gera í skömmtum svo kjötið steikist sem best. Færið kjötið á disk til hliðar og geymið.

Týnið rómsarínlaufin frá stilknum og saxið. Lækkið hitann á pottinum í miðlungshita.

Bætið rósmarín, perlulauk, gulrótum, rófum og hvítlauksrifjum út í pottinn og steikið í smástund þar til grænmetið byrjar að taka lit. Saltið smá. Bætið tómatpúrru,balsamic ediki út í pottinn og steikið í stutta stund. Bætið rauðvíni út í pottinn og sjóðið niður um helming. 

Bætið kjötinu út í pottinn ásamt kjötkrafti, sítrónu timían og nægu vatni svo vökvinn hylji kjötið ¾ vegu upp. Látið malla undir loki í 3,5 klst eða þar til kjötið er lungamjúkt. Ef tími gefst má láta kjötið malla lengur. Smakkið til með salti. Ef vökvinn er of þunnfljótandi má láta réttinn malla án loks þar til áferðin er hæfileg.

Setjið 375 ml af vatni í lítinn pott ásamt svolitlu salti og náið upp suðu. Sjóðið perlubygg í 15 mín eða þar til það er búið að mýkjast hæfilega. Sigtið vatnið frá og rífið parmesan ost saman við byggið. Saxið rúmlega helminginn af steinseljunni og hrærið saman við byggið ásamt rifnum sítrónuberki eftir smekk. Smakkið til með salti og sítrónusafa. Þetta skref er best að tímasetja svo byggið sé tilbúið á sama tíma og pottrétturinn.

Saxið restina af steinseljunni og hrærið saman við pottréttinn ásamt smá rifnum sítrónuberki. Smakkið til með salti og pipar.

Vínó mælir með: Imperial Reserva með þessum rétt. 

Uppskrift: Matur og Myndir