Humarsúpa

Fyrir 6

Hráefni

Um 950 g skelflettur humar frá Sælkerafiski

1 laukur

1 blaðlaukur

3 gulrætur

1 rauð paprika

3 hvítlauksrif

50 g smjör

2 msk. tómatpúrra

2 msk. sterkt karrý

½ tsk. cheyenne pipar

1 líter vatn

5 msk. fljótandi humarkraftur frá Oscar

2 msk. fljótandi nautakraftur frá Oscar

Salt og pipar eftir smekk

400 ml kókosmjólk

300 g Philadelphia rjómaostur

200 ml Muga hvítvín

500 ml rjómi (í súpupottinn)

250 ml þeyttur rjómi (til að setja ofan á í skálinni)

Aðferð

Affrystið og þerrið humarinn, geymið.

Saxið lauk, blaðlauk, gulrætur, papriku og hvítlauksrif gróft niður.

Steikið upp úr smjörinu og kryddið með karrý, cheyenne pipar, salti og pipar.

Þegar grænmetið fer aðeins að mýkjast má bæta tómatpúrrunni saman við og hræra vel og því næst hella vatninu ásamt humarkraftinum út í pottinn og ná upp suðunni.

Síðan má láta blönduna malla svona í að minnsta kosti klukkustund við vægan hita.

Takið næst töfrasprota og maukið allt grænmetið í pottinum svo súpan verði kekkjalaus.

Bætið þá rjómaosti, kókosmjólk og 500 ml rjóma í pottinn og smakkið til með salti, pipar og meiri krafti ef ykkur finnst þurfa. Leyfið aftur að malla svolitla stund.

Þá fer hvítvínið saman við og súpan er hituð aftur að suðu og humrinum bætt út í pottinn og slökkt undir. Leyfið humrinum að liggja í sjóðheitri súpunni í örfáar mínútur áður en þið setjið súpu á diska.

Berið fram með þeyttum rjóma og steinselju. Einnig er gott að hafa snittubrauð eða hvítlauksbrauð með súpunni.

Vínó mælir með: Muga hvítt með þessum rétt. 

Uppskrift: Gotteri.is