Pumpkin spice Stroh kaffi

Hráefni:

1 espresso skot kaffi eða ½ dl sterkt kaffi

1 msk hrásykur

¼ tsk pumpkin spice + auka til að skreyta

2-4 cl Stroh 60

Þeyttur rjómi

 

Pumpkin spice kryddblanda:

2 tsk kanill

½ tsk múskat

½ tsk malaður negull

½ tsk malað engifer

 

Aðferð:

Byrjið á því að útbúa pumpkin spice kryddblönduna. Blandið öllum hráefnunum saman í skál eða krukku. Gott að geyma svo í krukku upp í skáp til að eiga.

Blandið saman heitu kaffi, hrásykri og pumpkin spice í bolla eða glas. Hrærið vel saman þar til sykurinn leysist upp.

Hellið Stroh saman við og hrærið.

Hitið mjólkina í potti eða í mjólkurflóara, hellið saman við kaffiblönduna og hrærið.

Að lokum toppið kokteilinn með þeyttum rjóma, stráið pumpkin spice yfir og njótið!

 

Uppskrift: Hildur Rut