Fylltar krönsí kjúklingabringur með chili og sítrónu

Fyrir 3

Hráefni

3 kjúklingabringur
6 dl Eat real lentil chips chili & lemon
1 egg
1 dl spelt
Salt & pipar
Pam sprey

Fylling
½ Philadelphia rjómaostur
1 msk safi úr sítrónu
1-2 msk steinselja
Hvítlauksrif
Salt og pipar

Kartöflur
10 kartöflur
½ dl ólífuolía
1-2 msk ferskt timian (má vera þurrkað)
1-2 msk fersk steinselja
Salt & pipar

Sósa
1 dl Heinz majónes
1 dl sýrður rjómi
½ tsk hunang
Lítið hvítlauksrif, pressað
1 msk fersk steinselja, smátt söxuð
2 msk rifinn parmigiano reggiano

Aðferð:

 

Byrjið á því að útbúa fyllinguna. Hrærið saman rjómaost, sítrónusafa, steinselju, hvítlauksrif, salt og pipar.

Dreifið sakkinu á disk, speltinu á annan disk og pískið eggið í skál.

Snyrtið kjúklingabringurnar og skerið gat í miðjuna á þeim þannig að úr verði vasi.

Fyllið bringurnar með rjómaostafyllingunni (gott að nota skeið).

Setjið snakkið í poka og rúllið yfir með kökukefli svo það verði að mulningi.

Veltið bringunum varlega upp úr speltinu (passið að fyllingin leki ekki út), egginu og síðan snakkinu.

Spreyið kjúklinginn með Pam spreyi og bakið í ca 40 mínútur við 190°C í eldföstu formi þöktu bökunarpappír

Skerið kartöflurnar í báta og veltið þeim upp úr ólífuolíu og kryddinu. Bakið í 30-40 mínútur við 190°C. Veltið þeim reglulega.

Á meðan kjúklingurinn og kartöflurnar eru í ofninum að bakast er kjörið að útbúa sósuna! Blandið öllu hráefninu saman með skeið.

Mjög gott að bera réttinn fram með fersku salati.

Vinó mælir með: Ramon Roqueta Reserva með þessum rétt.

Uppskrift: Hildur Rut