Valentínusarkokteill: Cosmopolitan

 

Hráefni:

3 cl Cointreau

4 cl Russian standard Vodka

4 cl trönuberjasafi

2 cl safi úr lime

1 cl sykursíróp (má sleppa)

Klakar

Aðferð:

Hristið allt vel saman í kokteilhristara með nóg af klökum. 

Hellið í gegnum sigti í fallegt glas.

Sykursíróp

Hráefni

200 g sykur

200 ml vatn

 

Aðferð

Blandið saman vatn og sykur i í pott. 

Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til hann leysist upp. Kælið. Tekur nokkrar mínútur.

Ég helli sykursírópinu ofan í flösku með tappa og geymi í ísskáp. Það geymist í um 1 mánuð.