Djúsí ofnbakað pasta

 

Fyrir 4-6

 

Hráefni

500 g nautahakk

250 g tómatpassata

2-3 msk tómatpúrra

1/2 laukur

2 hvítlauksrif, pressuð

Kjötkraftur

Salt og pipar

400 g penne pasta frá De Cecco

3 egg

4 msk steinselja

1 ½ dl Parmigiano-Reggiano

4 msk smjör

2 dl kotasæla

1 Philadelphia ostur

Rifinn mozzarella ostur

Aðferð

  • Byrjið á að skera laukinn smátt og steikið hann við vægan hita. Bætið nautahakkinu út í og steikið. 
  • Blandið tómatpassata, hvítlauk og kjötkrafti saman við nautahakkið. Saltið og piprið eftir smekk.
  • Sjóðið penne pasta eftir leiðbeiningum á pakkningu.
  • Skerið steinselju og rífið Parmigiano. Þeytið eggin, steinseljuna og Parmigiano saman í skál.
  • Sigtið vatnið frá pastanu og setjið aftur í pottinn.
  • Bætið smjöri og eggjablöndu út í og hrærið. Hrærið kotasælu og rjómaosti út í og setjið pastablönduna í eldfast mót.
  • Smyrjið nautahakkinu ofan á pastað og stráið mozzarella osti yfir. 
  • Bakið í 15-20 mínútur við 180°C eða þar til osturinn er bráðnaður. Gott að bera fram með fersku salati.

Vínó mælir með: Ramon Roqueta Reserva með þessum rétt.

Uppskrift: Hildur Rut