Spagetti með kjötbollum

Uppskrift fyrir fjóra til fimm fullorðna

 

Hráefni

800 g nautahakk

½ krukka pestó með sólþurrkuðum tómötum frá Filippo berio

1 dl kotasæla

1 dl parmigiano reggiano, rifinn

1 egg

2 hvítlauksrif

1 tsk origano

Salt & pipar

Ólífuolía

Ferskur mozzarella

Spaghetti frá De Cecco

Fersk basilika

Sósa

Hunts tómatssósa í dós

1-2 hvítlauksrif

1 dl parmigano reggiano

2 msk Philadelphia rjómaostur

Salt & pipar

 

Aðferð

Byrjið á því að blanda saman nautahakki, pestó, kotasælu, parmigiano reggiano, eggi, pressuðu hvítlauksrifi, origano, salti og pipar í skál. Hnoðið öllu saman með höndunum eða notið hrærivél.

Mótið kjötbollurnar með matskeið þannig að þær verði allar svipaðar að stærð.

Dreifið bollunum í eldfast form klætt með bökunarpappír.

Drefiði ólífuolíu yfir þær og bakið í 20-25 mín við 190°C eða þar til bollurnar eru eldaðar í gegn.

Sjóðið spaghetti eftir leiðbeiningum og útbúið sósuna á meðan kjötbollurnar eru að bakast.

Sósan: Hrærið saman tómatsósu, pressuðu hvítlauksrifi, parmigiano reggiano, rjómaosti, salti og pipar í potti við vægan hita.

Dreifið spaghetti í eldfast mót. Því næst dreifið kjötbollunum ofan á og hellið sósunni yfir.

Rífið ferskan mozzarella og dreifið yfir og bakið í ofni í 5-7 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður.

Berið fram með ferskri basiliku og parmigiano reggiano.

Vinó mælir með: Ramon Roqueta Garnacha með þessum rétt.

Uppskrift: Hildur Rut