Sítrónupasta

Fyrir 3-4

Hráefni

300-400 g spaghetti frá De cecco

Ólífuolía 

3 skarlottulaukar

2 hvítlauksrif, pressuð

150 g kastaníusveppir

150 g venjulegir sveppir

100 g spínat

1 pkn Philadelphia rjómaostur

1 sítróna

1 dl steinselja, smátt söxuð

1 dl parmigiano reggiano, rifinn

Salt & pipar

 

Aðferð

Byrjið á því að sjóða spaghetti samkvæmt leiðbeiningum.

Á meðan útbúið þið sósuna. Skerið sveppi og skarlottulauk og rífið sítrónubörkinn.

Steikið skarlottulaukinn og hvítlaukinn upp úr ólífuolíu. Bætið sveppunum við og steikið þar til þeir hafa aðeins mýkst. Því næst bætið þið við spínati og blandið saman.

Hrærið rjómaostinum út í ásamt safa úr einni sítrónu, sítrónuberki, steinselju og parmigiano. Saltið og piprið eftir smekk.

Blandið spaghettinu saman við sósuna og berið fram með rifnum parmigiano og steinselju.

Vínó mælir með: Cune Blanco með þessum rétt. 

Uppskrift: Hildur Rut