Willm Clos Gaensbrænnel Grand Cru Kirchberg de Barr Gewurztraminer 2014

Vinotek segir;

„Kirkjuhæðin við Barr eða Kirchberg de Barr er ein af Grand Cru-ekrum Alsace-héraðsins en í þann flokk falla alla bestu vínekrur héraðsins sem í gegnum aldirnar hafa sýnt fram á einstök sérkenni. Fyrir tugmilljónum ára var þetta svæði undir hafi og smátt og smátt myndaðist jarðfræðilega margslunginn jarðvegur á hafsbotninum. Þessi jarðvegur sem nú má finna í jarðlögunum í hlíðunum upp af Rín myndar kjöraðstæður til vínræktar.

Ekran Kirchberg er á hæð sem teygir sig upp frá Saint Martin-kirkjunni í bænum Barr en þar er vínhúsið Maison Willm einnig til húsa. Clos Gaensbrænnel er stórt og mikið hvitvin, liturinn gullinn, í nefinu þurrkaður og sætur ávöxtur, sítróna, greip og aprikósa, í munni er vínið þykkt og feitt, það loðir við góminn en hefur líka bjartan ferskleika. Unaðslegt jafnvægi sýru og sætu. 3.899 krónur. Frábær kaup. Þetta er flott vín með foréttunum við veisluborðið á þessum árstíma. Með graflaxi, hreindýrapate eða grafinni gæs.

Share Post