Nektarínukokteill

Uppskrift dugar í um 6 glös

Hráefni

10 þroskaðar nektarínur

200 ml vatn

3 msk hlynsýróp

4 timian stönglar

1 flaska Muga rósavín

Aðferð

Skerið nektarínurnar í þunnar sneiðar og frystið í að minnsta kosti 4 klukkustundir (geymið tvær ferskar, eina til að skreyta með og hina fyrir sýrópið).

Setjið eina nektarínu í sneiðum í pott ásamt vatni, sýrópi og timian. Hitið að suðu og leyfið síðan að malla í 5-10 mínútur.

Sigtið þá allt gumsið frá og hellið vökvanum/sýrópinu í krukku og setjið inn í ísskáp til kælingar.

Gott er að útbúa sýrópið og setja nektarínurnar í frysti að morgni eða daginn áður en njóta á drykkjarins.

Þegar það kemur að því að útbúa kokteilinn má setja frosnar nektarínusneiðar, sýróp og rósavín í blandarann og blanda vel þar til áferðin verður eins og krap. Gott er að skipta þessari uppskrift til helminga fyrir blandarann, gera 3 og 3 glös í senn nema þið eigið þeim mun stærri blandara.

Skreytið síðan með ferskum nektarínusneiðium og timian.

Uppskrift: Gotteri.is