Espresso Margarita

Hráefni

3 cl Tequila blanco

3 cl Cointreau

3 cl kaffisíróp

2 cl safi úr lime

Aðferð

 

Hristið saman tequila, Cointreau, kaffi sírópi, safa úr lime og klaka í kokteilahristara í 15 – 20 sekúndur.

Hellið í fallegt glas í gegnum sigti og njótið.

Kaffisíróp

Hráefni

2 dl kaffi

2 dl sykur

Aðferð

Blandið saman kaffi og sykri i í pott.

Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til hann leysist upp. Kælið.

Hellið sírópinu ofan í flösku eða krukku í gegnum sigti og geymið í ísskáp. Passið að sírópið sé orðið kalt þegar þið notið það í kokteilinn.

Uppskrift: Hildur Rut