Ástarpungar

Hráefni

Hveiti, 300 g

Lyftiduft, 0,5 tsk

Sykur, 30 g

Salt, 1/4 tsk

Vanillustöng, 1 stk

Egg, 2 stk

AB-mjólk, 250 g

Smjör ósaltað, 30 g

Hitaþolin olía til djúpsteikingar, 800 ml

Sykur + smá kanill til að velta upp úr.

Aðferð

Bræðið smjör og látið kólna aðeins. Fræhreinsið vanillustöng. Pískið
saman smjör, egg, AB-mjólk og vanillufræ.

Pískið saman hveiti, lyftiduft, sykur og salt í stórri skál. Blandið því næst
blautblöndunni saman við þurrblönduna og hrærið þar til allt hefur
samlagast. Deigið verður klístrað og nokkuð þykkt.

Hitið 800 ml af olíu upp í 180°C í potti. Notið ísskeið (þessar sem maður
klemmir handföngin saman til að mynda kúlur) eða 2 skeiðar til þess að
mynda pungana og setja varlega út í heita olíuna. Gott er að dífa
skeiðunum í olíu inn á milli svo deigið festist ekki við þær. Steikið í 3.5-4
mín eða þar til pungarnir eru fallega brúnir og eldaðir í gegn.

Færið ástarpungana á vírgrind til að kólna aðeins og veltið svo upp úr
kanilsykrinum á meðan þeir eru enn heitir.

 

Viskí karamellusósa

 

Hráefni

Sykur, 200 g

Rjómi, 120 ml

Vanillustöng, 1 stk

Smjör ósaltað, 90

Viskí, 30 ml / Ég notaði Makers Mar

Flögusalt, 0,5 tsk

 

Aðferð

Fræhreinsið vanillustöngina og hrærið fræjunum saman við rjómann.

Setjið sykur í lítinn pott ásamt 60 ml af vatni. Hellið vatninu varlega yfir
sykurinn svo enginn sykur skvettist upp í kantana á pottinum því það
getur valdið því að sykurinn kristallist og skemmist þegar hann fer að
sjóða.

Stillið á miðlungshita og látið bubbla án þess að hræra í sykrinum þar til
sykurinn verður að karamelllu, þetta getur tekið nokkrar mínútur en alls
ekki fara frá pottinum því hluturnir geta gerst hratt og skyndilega. Hægt
og rólega ætti liturinn á sykrinum að verða ljósbrúnn og dökkna svo í
framhaldinu. Þetta byrjar að gerast við 160°C.

Takið pottinn af hitanum þegar liturinn er farinn að minna á hlynsíróp en
áður en hitinn nær 180°C. Hafið þá hraðar hendur.

Hellið rjómanum hægt og rólega saman við karamelluna og pískið vel á
meðan svo hann samlagist karamellunni. Karamellan mun bubbla
kröftuglega og hleypa frá sér gufu þegar rjómanum er bætt við. Farið
því varlega!

Pískið smjörið næst saman við karamelluna og að lokum viskí og
flögusalt.

Færið karamelluna í skál eða krukku og látið kólna til fulls. Karamellan
mun þykkna töluvert þegar hún kólnar.

Uppskrift: Matur og Myndir