Jólalegt eggjapúns

Nú í aðdraganda jólanna er afar notalegt að fá sér góðan og jólalegan kokteil. Okkur hefur lengi langað að prófa að útbúa eggjapúns (e.eggnog) og nú létum við loksins verða að því og nammi! Vá hvað þetta er góður og jólalegur drykkur. Eggjapúns er gert úr eggjum, sykri, rjóma, mjólk og viskí ásamt múskati og kanil. Við toppuðum drykkinn með smá chili og stjörnuanís og það passar sérlega vel með. Það er frábært að gera mikið í einu og eiga svo inn í ísskáp. Gæða sér svo á þessu á meðan þið pakkið inn gjöfunum eða undirbúið jólin í huggulegheitum. Það ætlum við allavega að gera. Njótið vel!

 

Hráefni:

4 egg

400 ml rjómi

300 ml mjólk

90 g sykur + 1 msk sykur

120 ml Maker‘s Mark viskí

½ tsk vanilludropar

½ tsk kanill

½ tsk múskat

Toppið með múskati, chilidufti og stjörnuanís (má sleppa)

Aðferð:

Skiljið eggjarauðurnar frá eggjahvítunum. Geymið eggjahvítuna til hliðar.

Þeytið eggjarauður þar til blandan verður þykk og létt. Bætið sykrinum smátt saman og hrærið þangað til að blandan verður létt og ljós.

Blandið rjóma, mjólk, vanilludropum, viskí, kanil og múskati saman við. Kælið.

Þeytið eggjahvíturnar þar til þær verða smá flöffí. Bætið 1 msk af sykri saman við og haldið áfram að þeyta í smá stund þar til þær stífna aðeins en passið að þær verði ekki alveg stífar.

Blandið eggjahvítunum varlega saman við blönduna. Hellið í könnu og geymið inn í ísskáp.

Berið fram með klökum og stráið múskati og chilidufti yfir og skreytið með stjörnuanís.

Njótið.

Uppskrift: Hildur Rut