Andabringur með graskers purée og sesam broccolini

Fyrir 2

Hráefni

Andabringur, 2 stk (sirka 250 g hver)

Grasker, 400 g (Eftir að skinnið er fjarlægt)

Broccolini, 150 g

Hvítlaukur, 3 rif

5 spice krydd, 2 ml / Kryddhúsið

Sýrður rjómi, 1 msk

Smjör, 1 msk

Sesamolía, 1 tsk

Sesamfræ, 0,5 tsk

Spírur, td Alfalfa eða blaðlauks.

 

Aðferð:

 

Takið andabringurnar kæli 1 klst áður en elda á matinn.

Forhitið ofn í 200°C með yfir og undirhita.

Takið utan af hvítlauknum. Pakkið 2 hvítlauksrifjum þétt inn í álpappír með skvettu af ólífuolíu og salti.

Skerið skinnið af graskerinu og skerið graskerið í bita. Veltið graskerinu upp úr olíu og salti og dreifið yfir ofnplötu með bökunarpappír.

Setjið innpakkaða hvítlaukinn á ofnplötuna með graskerinu og bakið svo í miðjum ofni í 30 mín eða þar til graskerið er farið að brúnast aðeins og er mjúkt í gegn.

Færið graskerið í pott ásamt bakaða hvítlauknum, sýrðum rjóma, smjöri og 5 spice kryddi. Notið töfrasprota til að mauka blönduna þar til silkimjúkt purée hefur myndast. Smakkið til með salti og geymið undir loki á meðan öndin er elduð.

Þerrið andabringurnar með eldhúspappír og saltið og piprið. Saltið skinnhliðina ríflega.

Setjið öndina í kalda pönnu sem má fara inn í ofn með  skinnhliðina niður. Stillið á meðalháan hita og látið pönnuna hitna rólega og þar með bræða fituna í skinnhliðinni rólega. Látið skinnhliðina steikjast þar til fitan hefur að mestu lekið úr henni og skinnið er orðið gyllt á litinn, sirka 5-6 mín.

Steikið öndina á kjöthliðinni í stutta stund til þess að loka henni. Snúið öndinni aftur á skinnhliðina og færið pönnuna inn í miðjuna ofn. Bakið öndina í 6-8 mín á skinnhliðinni og takið þá úr ofninum. Látið öndina hvíla í nokkrar mín áður en hún er skorin niður.

Sjóðið broccolini í 4-5 mín þar til það er mjúkt en þó með smá biti. Færið í skál og veltið upp úr pressuðum hvítlauk, sesamolíu og sesamfræjum. Smakkið til með salti.

Skreitið öndina með spírum og berið fram með fersku salati.

Vinó mælir með: Lealtanza Reserva með þessum rétt.

Uppskrift: Matur og Myndir