Yljandi ramen súpa með rifnum kjúklingalærum og vorlauk

 

Fyrir 2-3

 

Hráefni

Kjúklingalæri (skinn & beinlaus), 400 g

Kókosmjólk, 400 ml

Ferskar ramen núðlur, 2 pakkar

Vatn, 300 ml

Massaman karrýmauk, 30 g

Límóna, 1 stk

Vorlaukur, 2 stk

Gulrót, 60 g

Blaðlaukur, 50 g

Kóríander, 6 g

Púðursykur, 2 msk

Kjúklingakraftur (Oscar), 2 tsk

Karrý de lux, 2 msk / Pottagaldrar

Túrmerik, 1 tsk

Engifermauk, 1 tsk / Eða 1 tsk rifinn ferskur engifer

Steiktur skalottlaukur, 30 g 

Aðferð

  • Forhitið ofn í 180C með blæstri.
  • Veltið kjúklingalærunum upp úr olíu, 1 msk af Karrý de lux og svolitlu salti. Raðið kjúklingalærunum á ofnplötu með bökunarpappír og bakið í miðjum ofni í 30-35 mín.
  • Sneiðið hvíta og ljósgræna partinn af vorlauknum (geymið dekkri partinn), skerið gulrót í tvennt langsum og svo í skífur og skerið blaðlaukinn í tvennt langsum og svo í þunna strimla.
  • Hitið smá olíu í potti og steikið vorlaukinn, gulræturnar og blaðlaukinn við miðlungshita þar til gulræturnar eru byrjaðar að mýkjast.
  • Bætið karrýmauki, kjúklingakraft, engifer, restinni af Karrý de lux og túrmerik út í pottinn og steikið í smástund.
  • Bætið kókosmjólk, 300 ml af vatni og púðursykur út í pottinn og látið malla rólega í um 10 mín. Smakkið til með salti og góðri kreistu af límónusafa.
  • Lækkið hitann á pottinum. Losið ramen núðlurnar varlega í sundur með höndunum og bætið út í pottinn. Látið núðlurnar hitna í gegn og mýkjast í nokkrar mín.
  • Saxið kóríander og sneiðið dekkri partinn af vorlauknum í þunnar sneiðar. Rífið kjúklinginn í sundur með 2 göfflum.
  • Skiptið núðlunum og súpunni á milli skála og toppið með rifnum kjúkling, steiktum skalottlauk, vorlauk og kóríander og kreistið smá límóusafa yfir

Vínó mælir með: Adobe Reserva Chardonnay með þessum rétt.

Uppskrift: Matur & Myndir