Qesadilla Hringur

Uppskrift gerir 30 quesadilla rúllur

Hráefni

4-5 dl rifinn kjúklingur (ég keypti heilan kjúkling og reif hann niður)

10 sneiðar beikon

1 ½ dl blaðlaukur

2 tómatar

3 pkn hveititortillur frá Mission

1 krukka salsasósa frá Mission

1 krukka ostasósa frá Mission

2 dl Havarti ostur með jalapeno (má nota annan ost)

2-4 dl rifinn mozzarella ostur

2 dl rifinn cheddar ostur

Ferskt kóríander

Avókadó sósa

3 avókadó

1 dl sýrður rjómi

Safi úr 1 lime

½ tsk salt

¼ tsk pipar

¼ tsk laukduft

¼ tsk hvítlauksduft

Chili flögur eftir smekk

 

Aðferð

Byrjið á því að leggja beikonið á bökunarplötu þakta bökunarpappír og bakið í 10-12 mínútur við 200°C eða þar til beikonið er orðið stökkt.

Skerið blaðlauk, tómata og beikon smátt.

Setjið rifinn kjúkling í skál og kryddið. Bætið út í blaðlauknum, tómötunum, beikoni, 2 dl rifnum Havarti osti með jalapeno, 1 dl rifnum cheddar osti  og salsa sósunni. Blandið vel saman.

Skerið tortillurnar til helminga og smyrjið með rúmlega 1 tsk af ostasósu. Dreifið rifnum mozzarella osti yfir og rúmlega 1 msk af kjúklingablöndunni á alla helmingana. Rúllið tortillunum upp þannig að þær mynda kramarhús.

Notið hringlótt eldfast mót eða bökunarpappír. Setjið þá sósuskál sem þið ætlið að nota í miðjuna. Raðið tortilla rúllunum upp í hring. 

Blandið saman 1 dl cheddar ost og 1 dl mozzarella ost. Dreifið helmingnum af ostinum yfir tortilluhringinn og raðið svo restinni af tortillurúllunum ofan á þannig að það myndist tvær hæðir. Dreifið svo restinni af ostinum yfir.

Takið sósuskálina frá og bakið í ofni við 190°C í 10-12 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður.

Blandið öllum hráefnunum í sósuna saman með töfrasprota eða matvinnsluvél. Hellið í sósuskálina og setjið hana í miðjuna á tortilluhringnum. Dreifið kóríander yfir eftir smekk og njótið.

Vinó mælir með: Corona með þessum rétti.

Uppskrift: Hildur Rut