Ljúffengar andabringur og meðlæti

Fyrir 2-3

Hráefni

Andabringur

1 frosin andabringa frá Vallette

Salt og pipar

Ferskt timían

Ferskt rósmarín

Sósa

1 dl þurrkaðir kantarella sveppir

Smjör til steikingar

1 tsk smátt skorið ferskt rósmarín og timían

1 ½ msk smjör

3 msk hveiti

1 ½ dl vatn

2-4 tsk andakraftur frá Oscar

1 tsk púðursykur

Salt og pipar

2 dl mjólk

1 dl rjómi

Rósakál

5 dl ferskt rósakál

Smjör til steikingar

Salt og pipar

½ dl rjómi

½ dl rifinn parmigiano reggiano

Kartöflur eftir smekk

Aðferðir

Andabringur

Skerið tígla í fituna á andabringunni og passið að skera ekki ofan í kjötið.

Hitið pönnu og steikið andabringuna með fituna niður í 7-9 mínútur eða þar til fitan er orðin stökk. Ausið fitunni af pönnunni jafnóðum og notið til að steikja kartöflurnar.

Snúið andabringunni við og steikið í 1-2 mínútur.

Saltið og piprið eftir smekk. Setjið ferskt rósmarín og timían á andabringuna og klárið eldunina í ofninum í 12-15 mínútur við 180°C. Gott er að nota kjöthitamæli en kjarnhitinn á að vera 60 gráður. Andabringurnar mega alls ekki vera of mikið eldaðar því þá eru þær ekki góðar.

Leyfið kjötinu að hvíla í 10-15 mínútur og njótið.

Sósa

Skolið þurrkuðu kantarella sveppina og látið þá liggja í bleyti samkvæmt leiðbeiningum.

Steikið þá upp úr smjöri og bætið við fersku timían, rósmarín, salti og pipar eftir smekk. Takið þá til hliðar.

Bræðið smjör og bætið hveiti saman við. Hrærið í brauðbollu.

Bætið vatni saman við og hrærið þar til blandan er orðin þykk og mjúk.

Bætið andakrafti, púðursykri, salti og pipar og hrærið vel saman.

Hellið mjólk og rjóma útí og blandið kantarella sveppunum saman við. Þynnið sósuna með rjóma og kryddið eftir smekk.

Kartöflur

Steikið kartöflurnar upp úr andafitunni þar til þær verða smá stökkar. Kryddið eftir smekk og klárið eldunina í ofninum.

Rósakál

Hreinsið rósakálið, skerið stilkana af og kálið í tvennt.

Steikið á pönnu upp úr smjöri og kryddið með salti og pipar.

Setjið í eldfast mót, hellið rjómanum yfir og stráið yfir rifnum parmiggiano. Bakið í ofnið við 180°C í 6-8 mínútur.

Vínó mælir með: Vina Real Reserva með þessum rétt. 

Uppskrift: Hildur Rut