Kjúklingalæri elduð í einu fati

Hráefni

6 stk úrbeinuð kjúklingalæri

Kjúklinga kryddblanda

Sæt kartafla

Brokkolíhaus

150 g sveppir

1 stk græn paprika

2-3 msk hágæða ólífu olía

Salt og pipar

Hvítlaukssósa

Aðferð:

 

Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir hita, kryddið kjúklinginn vel og geymið.

Skerið sætu kartöflurnar, brokkolíið, sveppina og paprikuna niður og raðið á ofnheldan bakka. Hellið ólífu olíu yfir og kryddið með salti og pipar

Leggið kjúklingalærin yfir og bakið í u.þ.b. 30 mín eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn og kartöflurnar eru mjúkar.

Berið fram með hvítlaukssósu.

Vinó mælir með: Adobe Reserva Cabernet Sauvignon með þessum rétt.

Uppskrift: Linda Ben