Humarsalat

Hráefni

Um 660 g skelflettur humar frá Sælkerafiski (2 pk)

1/3 sítróna (safinn)

2 msk. ólífuolía

2 hvítlauksrif (rifin)

½ tsk. salt

½ tsk. hvítlauksduft

¼ tsk. pipar

Aðferð

Skolið og þerrið humarinn vel.

Blandið öllu öðru saman í skál og leyfið humrinum síðan að marinerast í leginum í að minnsta kosti 3 klukkustundir eða yfir nótt.

Raðið humri þétt upp á grillspjót og grillið á heitu grilli í um 2 mínútur á hvorri hlið eða þar til humarinn er eldaður í gegn. Gott er að spreyja PAM matarolíuspreyi á grindina áður en þið leggið humarspjótin niður.

Raðið humarspjótunum ofan á salatið og njótið með ísköldu Muga hvítvíni. Einnig mætti rista hvítlausbrauð með þessum rétti.

 

Salat og dressing

Hráefni

1 poki klettasalat

½ þroskað mangó

Um 6 stk. Driscolls jarðarber

Fetaostur eftir smekk

Ristaðar furuhnetur eftir smekk

Heinz hvítlausdressing á flösku

Aðferð

Skerið niður mangó og jarðarber.

Raðið öllu saman í skál og leggið humarspjótin yfir.

Sprautið hvítlauksdressingu yfir allt.

 

Vínó mælir með: Muga hvítt með þessum rétti.

Uppskrift: Gotteri.is