Humar risotto

Fyrir 4-5

Hráefni

800 g skelflettur humar frá Sælkerafiski

2 skalottlaukar

400 g Arborio hrísgrjón

100 ml Muga hvítvín

1250 ml vatn

2 msk. fljótandi humarkraftur frá Oscar

60 g smjör

60 g parmesanostur

2 hvítlauksrif

Ólífuolía og smjör til steikingar

Salt og pipar

Söxuð steinselja

Aðferð

Byrjið á því að affrysta, skola og þerra humarinn, geymið.

Útbúið soðið með því að sjóða saman vatn og humarkraft, haldið suðunni í því allan tímann.

Saxið skalottlaukinn smátt og steikið upp úr blöndu af smjöri og ólífuolíu þar til hann mýkist (um 2 mínútur) og kryddið með salti og pipar.

Bætið þá hrísgrjónunum saman við og steikið með lauknum í um tvær mínútur til viðbótar.

Hvítvínið má næst fara í pottinn og hrærið þar til það gufar upp.

Þá má hella um helming soðsins yfir grjónin og laukinn og hræra mjög reglulega í pottinum. Síðan þarf að hella einni ausu af soði í einu reglulega yfir og passa að grjónin þorni ekki upp og hræra varlega allan tímann.

Þegar grjóni eru orðin „al dente“ (eftir um 20 mín) má taka pottinn af hellunni á meðan þið steikið humarinn.

Setjið um 40 g af smjöri á pönnu og rífið niður hvítlauksrifin. Hellið humrinum saman við, saltið og piprið eftir smekk og steikið stutta stund eða þar til humarinn krullast aðeins upp, þá er hann tilbúinn.

Setjið risotto á fallegan disk og vel af humri yfir. Síðan er gott að rífa parmesan ost yfir allt og skreyta með steinselju. Einnig er gott að hafa snittubrauð eða hvítlauksbrauð með réttinum.

 

Vinó mælir með Muga með þessum rétti.

Uppskrift: Gotteri.is