Fylltar kjúklingabringur með rjómaosti og jalapeno

Fyrir 4

Hráefni

4 afþýddar kjúklingabringur frá Rose Poultry (1 poki)

200 g Light Philadelphia rjómaostur (1 pkn)

1 msk ferskur jalapeno, smátt skorinn

1 dl rifinn cheddar ostur + smá aukalega til að strá yfir kjúklinginn

1-2 tsk Tabasco jalapeno sósa

1 dl rifinn cheddar ostur

Salt og pipar

Sætkartöflufranskar og sósa

1 sæt kartafla

1-2 msk ólífuolía

Krydd: 1 tsk saltflögur, ¼ tsk pipar, 1 tsk laukduft, 1 tsk cumin

Sósa

180 g sýrður rjómi

2 tsk Tabasco jalapeno sósa

Krydd: ½ tsk saltflögur, ¼ tsk pipar, ½ tsk laukduft, ½ tsk hvítlauksduft

Ferskt avókadó salsa

1 avókadó

18-20 kokteiltómatar

Safi úr ½ lime

Smátt skorið ferskt kóríander eftir smekk

Aðferð

Byrjið á því að hræra saman rjómaosti, rifnum cheddar osti, ferskum jalapeno, Tabasco sósu, salti og pipar.

Snyrtið kjúklingabringurnar og skerið gat í miðjuna á þeim þannig að úr verði vasi.

Fyllið bringurnar með rjómaostafyllingunni (gott að nota skeið).

Leggið þær í eldfast mót. Saltið og piprið þær og dreifið rifnum cheddar osti yfir eftir smekk.

Bakið í 40 mínútur við 190°C eða þar til þær eru eldaðar.

 

Sætkartöflufranskar og sósa

Afhýðið sætu kartöfluna og skerið í strimla.

Setið strimlana í skál og blandið vel saman við ólífuolíu og krydd.

Dreifið á bökunarplötu þakta bökunarpappír og bakið í um 20-25 mínútur.

Blandið öllum hráefnum í sósuna í skál og hrærið vel.

 

Ferskt avókadó salsa

Skerið avókadó, tómata og kóríander smátt. Kreistið safa úr lime yfir og blandið saman.

Vínó mælir með: Purato Catarratto Pinot Grigio Organic Wine með þessum rétt. 

Uppskrift: Hildur Rut