Butter chicken

Fyrir 3 – 4

 

Hráefni

Kjúklingalæri (skinn & beinlaus), 600 g

Miðausturlenskt kjúklingakrydd, 2 msk / Kryddhúsið

Laukur, 1 stk 

Tómatpúrra, 2 msk

Hvítlauksrif, 2 stk

Rifinn ferskur engifer, 1 tsk

Borðedik, 1 tsk

Hunang, 1 tsk

Kanilstöng, 1 stk

Niðursoðnir tómatar, 400 g / 1 dós

Kasjúhnetur, 40 g

Garam masala, 2 msk

Kjúklingakraftur, 1 tsk / Oscar

Cumin, 1 tsk

Smjör, 60 g

Rjómi, 80 ml

 

Aðferð

Setjið kjúklingalærin í skál með góðri skvettu af olíu, 2 tsk af flögusalti og miðausturlensku kjúklingakryddi. Blandið vel saman og látið marinerast í 30-60 mín.

Stillið ofn á 200°C með blæstri.

Dreifið kjúklingalærunum yfir ofnplötu með bökunarpappír og bakið í miðjum ofni í um 25 mín eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður og fallega brúnaður.

Sneiðið lauk í þunnar sneiðar. Hitið smá olíu í potti við miðlungs-lágan hita og steikið laukinn þar til hann er glær og mjúkur. Varist að hafa of háan hita svo laukurinn brúnist ekki.

Pressið 2 hvítlauksrif saman við laukinn og steikið í 1-2 mín. 

Hækkið hitann ögn. Bætið engifer og tómatpúrru út í pottinn og steikið í 1-2 mín. Bætið borðediki, hunangi, kanilstöng, niðursoðnum tómötum, kasjúhnetum, garam masala, kjúklingakraft, cumin, 1 tsk af salti og 1 dl af vatni út í pottinn og látið malla undir loki 20 mín.

Fjarlægið kanilstöngina úr pottinum.

Bætið smjöri og rjóma út í pottinn og maukið innihald pottsins með töfrasprota þar til sósan er orðin silkimjúk, en þetta skref getur tekið nokkrar mín (verið þolinmóð). Ef sósan er of þykk má bæta við ögn af vatni.

Skerið eða rífið kjúkling í bita og bætið út í pottinn. Látið malla við vægan hita í nokkrar mín og smakkið til með salti.

Toppið með helling af ferskum kóríander og berið fram með hrísgrjónum og naan brauði.

 

Vínó mælir með: Stella Artois með þessum rétt.

Uppskrift: Matur & Myndir