Freyðivín fyrir áramótaveisluna

Nú árið er senn liðið í aldanna skaut og aldrei það kemur til baka, eins og segir í þekktu kvæði. Þá er við hæfi að líta til baka, gleðjast yfir því sem vel tókst til og læra af því sem miður fór. Og já – það tilheyrir líka að skjóta tveimur ólíkum hlutum upp í loftið; annars flugeldum og hins vegar töppum úr freyðivínsflöskum. Hvers vegna? Nú kannski vegna þess að tappinn táknar gamla árið, fokinn út í veður og vind verður ekki troðið í tímans flösku aftur, um leið og vínið sem flæðir út stendur fyrir nýja árið sem ryðst fram með öllum sínum ófyrirsjáanleika og möguleikum. Hér er að finna nokkrar góðar freyðivínstegundir sem við mælum með fyrir áramótaveisluna;

Conde de Haro Brut Reserva 

Rioja Spánn – Cava

Hérna er á ferðinni nýtt freyðivín í verslunum Vínbúðanna. Þetta sérstaklega skemmtilega freyðivín kemur frá hinum virta vínframleiðanda Muga í Rioja á Spáni. Ljóssítrónugult á lit, ósætt, létt freyðing og góð sýra. Í bragði má greina epli og sítrónu. Mjög skemmtilegt freyðivín sem passar mjög vel með sushi, skelfisk, smárréttum og meðal sætum eftirréttum. 


Emiliana Brut Organic

Síle – Freyðivín

Vín sem við mælum óspart með enda frábær gæði fyrir peninginn. Og ekki skemmir að vínið er lífrænt. Emiliana Brut kemur frá hinum virta framleiðanda Emiliana í síle. Vínið er fölgult á lit með fíngerða en þétta freyðingu. Í bragði má greina ljósa ávexti, ananas, límónu og græn epli. Gott eitt og sér sem fordrykkur eða með sushi, smáréttum og eftirréttum. 


Lamberti Prosecco

Ítalía – Prosecco

Lifandi og ferskt vín fá frábæru verði. Það kemur frá hinu virta vínhúsi Lamberti á Veneto á Ítalíu. Léttur og leikandi, þægilegt í munni og fersk sýra. Vel má greina epli, ferskjur og vínber. Frábært sem fordrykkur en hentar einnig vel með smárréttum, sjávarréttum og kökum. 


Lamberti Prosecco Rose 

Ítalía – Prosecco 

Mjög skemmtilegt bleikt prosecco frá Lamberti við Gardavatnið í Veneto héraðinu á Ítalíu. Fallega laxableikt á lit, í nefi má greina jarðarber, hindber, ferskjur og smá sítrus. Ferskt og fínlegt í munni með góðum endi. Vínið parast einstaklega vel með léttum smárréttum og eftirréttum. 

Mont Marcal Brut Reserva

Spánn – Cava

Yndislegt Cava frá Katalóníu á Spáni. Þetta er virkilega gott og vel gert freyðivín á frábæru verði. Ljóst á lit, freyðir fallega. Þurr angan af kexköxum, þurrkuðum ávöxtum, eplum og sítrónu. Þurrt með ferskri sýru en mjúkri áferð, freyðibólurnar þéttar og þægilegar.


Nicolas Feuillatte Brut Reserve 

Frakkland – Kampavín 

Fínlegt og vandað kampavín á frábæru verði. Glæsileg uppbygging í munni, viðkvæmt, ferskt með góða endingu. Greina má bökuð epli, sítrus og tertubotn. Brakandi ferskt vín sem lifir lengi í munni. Frábært vín sem fordrykkur en passar einnig vel með sushi, skelfisk og meðalsætum eftirréttum. 


Nicolas Feuillatte Brut Rose

Frakkland – Kampavín

Fallega ljósberjarautt með rauðbrúnum blæ. Vínið er ósætt með brakandi ferska sýru. Það freyðir létt og á fíngerðan hátt. Þroskað vín með góða fyllingu. Í bragði má finna rifsber, hindber og jarðarber. Vínið parast vel með ostum, reyktum laxi og einnig frábært með jarðarberjum og súkkulaði.


Pol Roger Reserve Brut

Frakkland – Kampavín

Pol Roger – vínhúsið var stofnað árið 1849 í Epernay, kampavínið er gert úr þremur þrúgum, pinot noir, pinot meunier og chardonnay. Það er látið liggja á flösku í a.m.k. þrjú ár. Fölgult á lit og þétt freyðing, þurrkuð epli, apríkósur og pera. Ferskt, míneralískt og margslungið, frábært kampavín. Vín sem parast mjög vel með sushi, skelfisk og meðalsætum eftirréttum. 


Willm Cremant d‘ Alsace Brut

Frakkland – Crémant

Fágað freyðivín frá Willm í Alsace í Frakklandi, framleitt með sömu aðferð og stuðst er við í Champagne. Þétt og þægilegt bólustreymi, þægileg uppbygging og gott jafnvægi út í gegn. Æðislegur fordrykkur og passar fullkomlega með smárréttum. Eitt besta freyðivín fyrir peninginn.


Willm Cemant d‘Alsace Rose

Frakkland – Crémant

Nýtt freyðivín í verslunum Vínbúðanna sem allir verða að prófa. Mjög gott crémant – vín frá hinu virta Willm vínhúsi í Alsace – héraði í Austur Frakklandi. Följarðarberjarautt á lit, ósætt, með létta freyðingu. Í bragði má finna finna blöndu af rauðum berjum, hindber og jarðarber. Vín sem parast einstaklega vel með léttum pastaréttum, smáréttum og meðalsætum eftirréttum.