Francois d’Allaines Bourgogne Chardonnay 2020

 

 

Vinotek segir;

Francois D‘Allaines er með vínhús sitt í þorpinu Dermigny í suðurhluta Cote-de-Beaune. Þetta er meira það sem maður myndi kalla bóndabýli en vínhús nema hvað að d‘Allaines er ekki með fjós eða fjárhús við hliðina á húsinu sínu líkt og íslenskir bændur heldur litla víngerð og vínkjallara. Allaine hefur framleitt vín frá 1996 og hefur byggt upp góð sambönd við bændur á svæðinu sem hann kaupir þrúgur af. Þetta litla vínhús hefur byggt upp traust orðspor fyrir vönduð vín sem draga vel fram karaktereinkenni suðurhluta Búrgundarsvæðisins. Við heimsóttum Francois d’Allaines á sínum tíma og má lesa nánar um þessa sjarmerandi víngerð hér. Fölgult, mild og létt sítrusangan, þurrkuð sítróna, gul epli, þurr ávöxtur í munni, mildur beiskleiki, þurr endir. 3.899 krónur. Mjög góð kaup. Með bleikju eða laxi.

Post Tags
Share Post