Willm Kirchberg de Barr Pinot Gris 2017

 

 

Vinotek segir;

Kirkjuhæðin við Barr eða Kirchberg de Barr er ein af Grand Cru-ekrum Alsace-héraðsins en í þann flokk falla alla bestu vínekrur héraðsins sem í gegnum aldirnar hafa sýnt fram á einstök sérkenni. Fyrir tugmilljónum ára var þetta svæði undir hafi og smátt og smátt myndaðist jarðfræðilega margslunginn jarðvegur á hafsbotninum. Þessi jarðvegur sem nú má finna í jarðlögunum í hlíðunum upp af Rín myndar kjöraðstæður til vínræktar. Ekran Kirchberg er á hæð sem teygir sig upp frá Saint Martin-kirkjunni í bænum Barr en þar er vínhúsið Maison Willm einnig til húsa. Það eru nokkur vín gerð á hæðinni og hér er á ferðinni Pinot Gris-vínið. Gult á lit, angan af sætum apríkósum og ferskjum, hunang, nýbakað brioche, þurrt og feitt í munni, þykkt og langt. 3.999 krónur. Mjög góð kaup. Með pate, með grafinni gæs eða graflax.

Post Tags
Share Post