Pornstar Martini

Hráefni

15 ml Passoa

40 ml vodka

25 cl safi úr sítrónu

25 cl Vanillu sykursíróp

½ ástaraldinn

1 egg eða 25 ml kjúklingabaunasafi

Aðferð

Hellið Passoa, vodka, safa úr sítrónu, sykursírópi með vanillu, innihaldi úr ástaraldininu og eggjahvítu (eða kjúklingabaunasafa) í kokteilhristara. Hristið vel í 15 sekúndur.

Bætið klökum saman við (mér finnst best að hafa þá stóra) og hristið í 30 sekúndur.

Hellið í glas í gegnum sigti og njótið

Tips: Ef að þið viljið ekki fá fræin úr ástaraldininu með þá er gott að sigta þau frá áður en það fer í hristarann.

Sykursíróp með vanillu

Hráefni

200 g sykur

2 dl vatn

1 vanillustöng

Aðferð

Setjið vatn, sykur og vanillustöng í pott.

Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til hann leysist upp. Kælið. Tekur nokkrar mínútur.

Ég helli sykursírópinu ofan í flösku með tappa og geymi í ísskáp. Það geymist í um 1 mánuð.

Uppskrift: Hildur Rut

Post Tags
Share Post