Pastasalat með ferskum maís, tómötum og kjúkling

Fyrir 4

Hráefni

400 g fusillini frá De Cecco

2 ferskir maískólfar

Krydd: Salt, pipar og cayenne pipar

1-2 msk smjör til steikingar

4 dl litlir tómatar (ég notaði medley tómata)

4 dl rifinn kjúklingur

2 dl fetakubbur (hreinn fetaostur)

2 avókadó (má sleppa, bara gott ef borðað er strax)

Salat eftir smekk

Toppa með fetaosti og ferskum kóríander eða steinselju

Sósa

2 dl Heinz majónes

Safi úr 1 lime

1-2 msk Sriracha sósa eða sambal oelek

Salt & pipar eftir smekk

Aðferð

Byrjið á því að sjóða fusillini eftir leiðbeiningum, sigtið og kælið.

Skerið maískornin af maískólfunum.

Steikið maísinn uppúr smjöri þar til hann brúnast aðeins og kryddið með salti, pipar og cayenne pipar.

Smátt skerið tómata og avókadó.

Stappið fetakubbinn gróflega.

Hrærið saman í sósuna.

Blandið saman fusillini, salati, maís, tómötum, kjúklingi, fetaosti, avókadó og sósu í stóra skál.

Toppið með fetaosti og ferskum kóríander eða steinselju og njótið

Við mælum með Adobe Reserva Rose með þessum frábæra rétt.

Uppskrift: Hildur Rut