Klassísk Margarita

Margarita er klassískur kokteill sem samanstendur af tequila, Cointreau og lime safa. Einstaklega góður kokteill sem passar til dæmis mjög vel með mexíkóskri matagerð.

Hráefni:

4 cl Tequila

2 cl Cointreau

2 cl lime safi

Salt

Klaki

Aðferð:

  1. Kælið glasið með klökum á meðan drykkurinn er hristur.
  2. Setjið salt í undirskál, vætið brúnina á glasinu með lime og dýfið glasinu ofan í saltið.
  3. Blandið Cointreau, tequila og lime safanum saman með klaka í hristara og hristið vel og hellið svo drykknum í glasið.

Post Tags
Share Post