Jarðaberja Bellini

Hráefni

2 dl Lamberti Prosecco
3 jarðaber
3 cl sykursíróp

Aðferð

Byrjið á því að blanda saman jarðaberjum og sykursírópi með töfrasprota eða í blender.

Hellið jarðaberjablöndunni í fallegt glas.

Því næst hellið Prosecco rólega út í og hrærið varlega í drykknum.

Skreytið með jarðaberi og njótið.

 

Sykursíróp

Blandið saman 200 ml af vatni og 200 g af sykri í pott.

Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til hann leysist upp. Kælið. Tekur nokkrar mínútur.

Ég helli sykursírópinu ofan í flösku með tappa og geymi í ísskáp. Það geymist í um 1 mánuð.

Uppskrift: Hildur Rut