Klassískur Mojito kokteill

 

Hráefni:

2 stk lime sneiðar

1 lúka myntu lauf

20 ml sykursýróp

30 ml Brugal romm

Klakar

Sódavatn

Aðferð:

Setjið lime og myntu lauf í glas, merjið það saman með kokteil merjara.

Setjið sykursýróp og romm út í drykkinn, blandið saman.

Fyllið glasið af klökum og hellið sódavatni yfir, blandið saman.

 

Uppskrift: Linda Ben