Indverskt kjúklingasalat

Hráefni fyrir kjúklinginn:

1 pakki úrbeinuð kúklingalæri
1 tsk karrý
1 tsk chilliduft
1/2 lime safi
Ólífuolía
salt og pipar

Aðferð:

Skerið kjúklinginn í litla bita og blandið honum saman við önnur hráefni og geymið í kæli í 2 klst.

Raðið kjúklingabitunum á spjót og steikið á pönnu þangað til að kjúklingurinn er orðinn full eldaður.

Hráefni fyrir salatið: 

Rauðlaukur
Avokadó
Mango
Gúrka

 

Salat sósa

1 dós hreint jógúrt
2 msk Mango chutney
1/2 tsk karrý
1/2 ferskt chilli (má sleppa)

Berið salatið fram með söxuðum salthnetum og pistasíum.

Vinó mælir með Adobe Reserva Rose með þessum rétt.

 

 

Share Post