Fyrir 4

Hráefni

Nautabógklumpur, 900 g

Pappardelle pasta, 250 g

Sellerí, 60 g

Gulrót, 60 g

Laukur, 100 g

Hvítlaukur, 15 g

Tómatpúrra, 2 msk

Rauðvín, 150 ml

Nautakraftur, 1 msk / Oscar

Provance krydd, 1 msk

Tómat og jurtateningur, 1 stk

Tómatar, 1 dós

Hunang, 2 tsk

Matreiðslurjómi, 150 ml

Fersk steinselja, 15 g

Parmesan, 30 g + meira eftir smekk

Aðferð

  • Stillið ofn á 100 °C með yfir og undir hita.
  • Saxið lauk, gulrætur og sellerí smátt.
  • Skerið nautkjötið í jafnstóra bita, sirka 9 stk. Þerrið kjötið ef þess þarf og saltið og piprið smá.
  • Brúnið kjötið vel á öllum hliðum við frekar háan hita í steypujárnspotti, sirka 5 mín. Færið kjötið svo á disk til hliðar og geymið.
  • Lækkið hitann og bætið lauk, gulrótum og sellerí út í pottin ásamt smá salti og steikið þar til grænmetið mýkist aðeins, sirka 5 mín.
  • Pressið hvítlauk saman við og steikið þar til hvítlaukurinn fer að ilma. Bætið tómatpúrru út í og steikið í nokkrar mín. Hækkið hitann, bætið víni út í pottinn og sjóðið niður í nokkrar mín.
  • Bætið kjötkrafti, provance kryddi, grænmetistening, hunangi og San Marzano tómötum út í en kremjið tómatana í sundur áður en þeir fara í pottinn.
  • Bætið kjötinu aftur út í pottinn og bætið við smá vatni ef þarf, en vökvinn á að hylja kjötið sirka 3/4 leið.
  • Setjið pottinn inn í 100 gráðu heitann ofn í 3,5-4 tíma eða þar til kjötið er orðið mjúkt og losnar auðveldlega í sundur.
  • Takið pottinn úr ofninum og fleitið fitunni sem hefur safnast saman af sósunni. Fjarlægið kjötið úr pottinum og notið 2 gaffla til þess að rífa kjötið í sundur.
  • Setjið pottinn á hellu og stillið á vægan hita. Bætið kjötinu aftur út í pottinn ásamt rjóma, smjörklípu og 30 g af rifnum parmesanosti og látið malla í 10 mín án loks.
  • Sjóðið pappardelle pasta eftir leiðbeiningum á pakka en takið um 1 dl af pastavatninu frá og bætið við kjötsósuna í nokkrum skömmtum ef sósan verður of þykk og látið sjóða í smástund til þess að virkja sterkjuna í pastavatninu.
  • Smakkið kjötsósuna til með salti og blandið pastanu svo saman við ásamt saxaðri steinselju og meiri parmesanosti eftir smekk.
  • Berið fram með fersku salati.

Vínó mælir með: Cune Crianza með þessum rétt.

Uppskrift: Matur & Myndir