Ómótstæðilegt Pad thai með risarækjum

 

Fyrir 3

 

Hráefni

Risarækjur, 300 g

Hrísgrjónanúðlur, 200 g

Egg, 2 stk

Fiskisósa, 4 msk

Tamarind paste, 3 msk / Fæst í Fiska á Nýbýlavegi

Púðursykur, 5 msk

Hrísgrjónaedik, 1 msk

Límónusafi, 1 msk

Srirachasósa, 1 msk

Paprikuduft, 1 msk

Salthnetur, 80 ml

Baunaspírur, 60 g

Laukur, ½ lítill

Hvítlaukur, 3 rif

Vorlaukur, 2 stk

Kóríander, 8 g

Agúrka, 50 g

Límóna, 1 stk

Aðferð

  • Útbúið hrísgrjónanúðlur samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum.
  • Þerrið rækjur og setjið í skál með smá skvettu af olíu og 1 pressuðu hvítlauksrifi. Látið marinerast á meðan unnið er í öðru.
  • Hrærið saman fiskisósu, tamarind paste, púðursykur, hrísgrjónaedik, límónusafa, srirachasósu og paprikuduft.
  • Sneiðið hvíta og ljósgræna partinn af vorlauknum í sneiðar.
  • Sneiðið dekkri græna partinn af vorlauknum í þunnar sneiðar og geymið til hliðar til þess að strá yfir réttinn þegar hann er tilbúinn.
  • Pískið eggin saman í skál. Saxið salthnetur og kóríander og sneiðið lauk í þunna strimla. Skerið gúrkur í sneiðar.
  • Hitið olíu á stórri pönnu við miðlungshita. Bætið lauk og ljósa partinum af vorlauknum út á pönnuna og steikið þar til laukurinn er farinn að mýkjast. Pressið 2 hvítlauksrif út á pönunna og steikið áfram í um 1 mín.
  • Hækkið hitann á pönnunni. Bætið rækjum út á pönnuna og steikið í um 2 mín á hvorri hlið.
  • Færið allt til hliðar á pönnunni og hellið eggjunum á auða part pönnunar. Bíðið í smástund þar til eggin eru farin að þéttast og hrærið þá í þeim til að brjóta þau í sundur og hrærið þeim svo vandlega saman við hin hráefnin á pönnunni.
  • Bætið ¾ af baunaspírunum út á pönnuna ásamt núðlunum og sósunni. Veltið núðlunum upp úr sósunni í stutta stund þar til allt hefur samlagast og núðlurnar eru vel huldar sósu. Hrærið helmingnum af kóríander, vorlauk og salthnetunum saman við og smakkið réttinn til með salti.
  • Toppið réttinn með restinni af salthnetunum, kóríander og vorlauk. Berið fram með límónubátum, gúrkusneiðum og restinni af baunaspírunum til hliðar.

 

Vínó mælir með: Muga Rose með þessum rétt.

Uppskrift: Matur & Myndir