Fylltar kjúklingabringur

Uppskrift: Linda Ben

Hráefni:

  • 4 stk kjúklingabringur
  • 200 g philadelphia rjómaostur
  • 1 dl rautt pestó
  • 1 ½ dl grænar ólífur (stein lausar)
  • Ítölsk kryddblanda
  • Ferskt basil
  • Parmesan ostur

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200ºC.
  2. Blandið saman philadelphia, rauðu pestó og grænum ólífum sem hafa verið skornar í bita.
  3. Skerið þvert inn í kjúklingabringurnar þar sem þær eru þykkastar og myndið einskonar vasa fyrir fyllinguna. Setjið fyllinguna inn í vasann á hverri bringu, kryddið bringurnar með ítalskri kryddblöndu og setjið í eldfast mót. Ef það er afgangur af fyllingunni setjiði hana þá í eldfasta mótið líka.
  4. Bakið bringurnar inn í ofni í u.þ.b. 40 mín eða þar til þær eru eldaðar í gegn.
  5. Berið fram með ferksu basil, parmesan osti, auka rauðu pestó-i og smjör steiktum forsoðnum kartöflum sem hafa verið velt upp úr ítölsku kryddblöndunni.

Vinó mælir með Saint Clair Vicar’s Choice Sauvignon Blanc með þessum rétt.