Forrétta snittu bakki

Hráefni

Snittubrauð

Grænt pestó

Hummus

Mygluostur

Brómber

Bláber

Kantílópu melóna

Ananas

Græn epli

Hráskinka

Aðferð

Skerið brauðið í sneiðar, ristið sneiðarnar (ég ristaði brauðið á grill pönnu til að fá svona fallegar rendur í það), raðið þeim á bakkann.

Setjið hummusinn og pestóið í fallegar skálar og setjið á bakkann ásamt mygluostinum.

Skerið kantílópu melónuna og eplin í sneiðar, ananasinn í bita og raðið á bakkann.

Setjið bláberin, brómberin og hráskinkuna á bakkann þar sem vantar fyllingu á bakkann.

Vínó mælir með: Adobe Reserva Rose Organic Wine með þessum rétt.

Uppskrift: Linda Ben