Grilluð ávaxtaspjót með súkkulaði og myntu

Hráefni

Uppskrift dugar fyrir 5-6 spjót

1/2 ferskur ananas

3 ferskar ferskjur

15-20 fersk Driscolls jarðarber

50 g dökkt brætt súkkulaði

2 msk. söxuð mynta

Aðferð

  1. Skerið ananas og ferskjur niður í hæfilega stóra bita.
  2. Raðið ananas, ferskjum og jarðarberjum til skiptis upp á grillspjót.
  3. Grillið á meðalheitu grilli í um 2 mínútur á hvorri hlið.
  4. Raðið á bakka og setjið brætt súkkulaði yfir allt og saxaða myntu.

Vínó mælir með: Muga rósavíninu með þessari uppskrift.

Uppskrift: gotteri.is