Töfrandi tómatsúpa og gratínerað hvítlauksbrauð

Uppskrift fyrir 4 – 5

Hráefni

1 laukur (saxaður)

2 gulrætur (saxaðar)

2 hvítlaukrif (söxuð)

50 ml Muga rauðvín

40 g hveiti

100 g Hunt‘s tómatpúrra

300 ml vatn

2 x dós (411 g) af Hunt‘s tómötum (Basil-Garlic-Oregano)

300 ml rjómi

1 msk. söxuð basilíka

1 msk. Oscar grænmetiskraftur (duft)

30 g smjör

Salt, pipar og hvítlauksduft

Sýrður rjómi, pipar og söxuð basilíka sem „topping“

Aðferð

Steikið lauk, gulrætur og hvítlauk við meðalhita upp úr smjörinu þar til mýkist, kryddið eftir smekk.

Hækkið hitann, hellið rauðvíninu yfir grænmetið og hrærið þar til það hefur að mestu gufað upp.

Bætið þá hveitinu á pönnuna og hrærið vel, næst má setja tómatpúrruna og hræra saman og þá vatnið, hrærið áfram vel.

Báðar dósir af tómötum mega fara saman við ásamt rjómanum, krafti, basilíku og svo má krydda eftir smekk og smakka til.

Leyfið að malla í um 30 mínútur við vægan hita, hrærið í af og til.

Maukið síðan súpuna með töfrasprota eða í blandara að 30 mínútum liðnum og toppið með sýrðum rjóma, basilíku og pipar.

Gott er að útbúa hvítlausbrauðið á meðan súpan mallar, ganga frá og leggja á borð.

Gratínerað hvítlauksbrauð

 

 

Hráefni

1 hvítt snittubrauð (niðurskorið)

100 g smjör við stofuhita

2 hvítlauksrif (rifin)

1 msk. söxuð steinselja

Rifinn ostur

Gróft salt

 

Aðferð

Hitið ofninn í 200°C.

Stappið smjör, hvítlauk og steinselju saman.

Smyrjið vænu lagi yfir hverja brauðsneið (um 1 tsk), setjið rifinn ost yfir, smá salt og bakið í um 5 mínútur.

Vinó mælir með: Muga Reserva með þessum rétti.

Uppskrift: Gotteri.is