Rósmarín kjúklingabringur með sætum kartöflum, eplasalati og sveppasósu.

Fyrir 2

Hráefni

Kjúklingabringur, 2 stk

Ferskt rósmarín, 3 g

Sætar kartöflur, 400 g

Sveppir, 60 g

Sveppakraftur, ½ teningur

Rautt epli, 1 stk / T.d. Pink lady

Klettasalat, 30 g

Rauðlaukur lítill, 1 stk

Rjómi, 150 ml

Hvítvín, 50 ml

Hunang, 1 tsk

Límónusafi, 1 tsk

 

Aðferð

Ofn 180°C með blæstri

Skerið sæta kartöflu í bita og veltið upp úr olíu og salti. Dreifið yfir ofnplötu með bökunarpappír og bakið í neðstu grind í ofni í 30-35 mín. Hrærið í þegar tíminn er sirka hálfnaður.

Tínið rósmarínlaufin af stilknum og saxið fínt. Setjið kjúklingabringur í skál með söxuðu rósmarín, olíu og salti eftir smekk. Blandið vel saman.

Hitið olíu á pönnu við meðalháan hita. Steikið kjúklingabringurnar í 2,5 mín á hvorri hlið og færið svo í eldfast mót. Bakið í miðjum ofni í um 15 mín eða þar til kjúklingurinn er hvítur í gegn og fulleldaður.

Lækkið hitann á pönnunni í miðlungshita. Sneiðið sveppi. Bætið sveppum út á pönnuna, og steikið þar til þeir fara að mýkjast. Bætið hvítvíni út á pönnuna og látið sjóða niður um helming. Bætið rjóma og sveppakrafti út á pönnuna og látið malla rólega í nokkrar mín þar til sósan þykkist. Smakkið til með meiri sveppakrafti og salti ef þarf.

Pískið 1 msk af ólífuolíu saman við hunang og límónusafa.

Sneiðið epli og skerið rauðlauk eftir smekk í þunna strimla. Setjið klettasalat, epli og rauðlauk í skál og hellið salatdressingunni saman við rétt áður en maturinn er borinn fram. Blandið vel saman.

Vinó mælir með: Domaine des Malandes Petit Chablis með þessum rétt.

Uppskrift: Gotteri.is