Ofur gott taco með andaconfit

Hráefni

Önd

2 andaconfit frá Valette

6-8 Street tacos frá Mission

Ólífuolía til steikingar

Rauðkálshrásalat

5 dl rauðkál, smátt skorið

1 dl majónes frá Heinz

1dl sýrður rjómi

3 msk safi úr appelsínu

4-6 jalapeno sneiðar úr krukku

Granatepla salsa

1 dl fræ úr granatepli

2-3 msk rauðlaukur, smátt skorinn

1 tómatur

Kóríander

2 msk safi úr appelsínu

Toppa með fetaosti

 

Aðferð

Bakið andaconfit eftir leiðbeiningum á dós og rífið það með tveimur göfflum.

Skerið rauðkálið smátt.

Blandið saman í skál majónesi, sýrðum rjóma, safa úr appelsínu og smátt skornu jalapeno eða blandið saman með töfrasprota.

Hrærið blöndunni saman við rauðkálið.

Smátt skerið rauðlauk, tómat og kóríander og blandið saman ásamt fræjum úr granatepli og safa úr appelsínu.

Steikið litlu tortillurnar upp úr ólífuolíu þar til þær verða stökkar en passið samt að þær brenni ekki.

Raðið svo hrásalati, önd, granatepla salsa og smá fetaosti á tortillu og njótið vel.

Vínó mælir með: Corona með þessum rétt. 

Uppskrift: Hildur Rut