Lúxus rjómalagað humar tagliatelle með stökku beikoni

Hráefni

Skelflettur humar, 2 pakkar (sirka 700 g), Sælkerafiskur

Beikon, 6 sneiðar

De Cecco tagliatelle með eggjum, 250 g

Laukur, 1 stk

Hvítlauksrif, 4 stk

Tómatpúrra, 3 msk

Hvítvín, 120 ml

Humarkraftur, 0,5 msk + meira eftir smekk / Oscar

Kjúklingakraftur, 0,5 msk + meira eftir smekk / Oscar

Ítalskt sjávarréttakrydd, 1,5 msk / Pottagaldrar

Rjómi, 120 ml

Niðursoðnir tómatar, 1 dós / 400 g

Parmesan ostur, 45 g + meira eftir smekk

Breiðblaða steinselja, 10 g

Aðferð

Afþýðið og þerrið humar. Hreinsið svörtu röndina úr humrinum ef þarf. Setjið humarinn í skál með olíu og 2 pressuðum hvítlauksrifjum og marinerið í 10 mín.

Raðið beikonsneiðum á ofnplötu með bökunarpappír og bakið í miðjum ofni við 180°C á blæstri í 10-14 mín eða þar til beikonið er fulleldað. Fylgist vel með eftir 10 mín því þá geta hlutirnir farið að gerast hratt.

Saxið lauk nokkuð smátt. Pressið hin 2 hvítlauksrifin.

Steikið humar upp úr smjörklípu í steypujárnspotti eða á stórri pönnu, salt smá. Þetta er best að gera í tveimur pörtum svo humarinn steikist sem best. Færið humarinn á disk og hyljið með álpappír.

Steikið saxaðan lauk við miðlungshita þar til laukurinn er glær og mjúkur. Bætið pressuðum hvítlauk út í og steikið þar til hvítlaukurinn byrjar að ilma.

Bætið tómatpúrru út í pottinn og steikið í stutta stund, bætið næst hvítvíni út í og sjóðið niður um helming.

Bætið humarkrafti, kjúklingakrafti, sjávarréttakryddi, rjóma og niðursoðnum tómötum út í pottinn. Rífið helminginn af parmesan ostinum saman við og látið malla undir loki á meðan pasta er soðið. Smakkið til með salti og meiri kröftum ef þarf.

Sjóðið pasta eftir leiðbeiningum í vel söltu vatni en geymið svolítið pastavatn til þess að þynna sósuna ef þarf.

Saxið steinselju og skerið beikon í bita.

Bætið pasta, humrinum og vökvanum af disknum út í pottinn ásamt saxaðri steinselju og beikoni. Rífið restina af parmesan ostinum saman við réttinn og veltið pastanu upp úr sósunni þar til það er vel hulið sósu. Bætið við ögn af pastavatni eða smá rjóma ef þarf að þynna sósuna. Smakkið til með salti.

Berið fram með fersku salati og góðu brauði.

Vínó mælir með: Willm Gewurztraminer Reserve með þessum rétt. 

Uppskrift: Matur og Myndir