Ljúffengir BBQ kjúklingastrimlar

Hráefni

700 g kjúklingalundir frá Rose Poultry (1 poki)

1-2 egg

1 dl hveiti

Krydd: 1 tsk salt, ¼ dl pipar, ½ tsk laukduft, ½ tsk hvítlauksduft

½ dl ólífuolía

1 dl Bulls-eye Smokey Chipotle BBQ sósa

Toppa með: Sesamfræjum, vorlauk, chili og kóríander eftir smekk (má sleppa).

Kartöflur

3-4 stórar bökunarkartöflur

½ dl ólífuolía

Krydd: 2 tsk gróft sjávarsalt, 1 tsk laukduft, 1 tsk hvítlauksduft, ½ tsk pipar

Sósa

½ dl Heinz majónes

1 dl sýrður rjómi

2 msk stappaður gráðostur

1 msk safi úr lime

Salt & pipar eftir smekk

 

Aðferð

Pískið egg í skál og dreifið hveiti og kryddi á disk.

Hrærið öllum hráefnunum í sósuna saman í skál og setjið til hliðar.

Snyrtið kjúklingalundirnar. Veltið þeim upp úr egginu og síðan hveitinu.

Raðið kjúklingnum á bökunarplötu þakta bökunarpappír og dreifið ólífuolíu yfir.

Bakið í 20 mínútur við 190°C á blæstri.

Hellið BBQ sósunni yfir og dreifið á alla kjúklingastrimlana. Setjið þá aftur inn í ofninn og bakið í 8-10 mínútur í viðbót.

Dreifið  sesamfræjum, sneiðum af vorlauk, sneiðum af chili og kóríander yfir kjúklingstrimlana. Berið fram með kartöflubátum og gráðostasósu, Njótið.

Kartöflubátar

Skerið kartöflurnar í langa báta.

Setjið kartöflubátana, ólífuolíu og krydd saman í skál og blandið vel saman.

Bakið í ofnið í 30-40 mínútur við 190°C á blæstri.

Vínó mælir með: Emiliana Coyam með þessum rétt.

Uppskrift: Hildur Rut