Ítalskt bolognese með steiktri Parma skinku og mozzarella

Hráefni

Ungnautahakk, 300 g

Hvítlaukur, 1 rif

Parma skinka, 70 g

Grænar ólífur, 8 stk

Spaghetti, 180 g

Niðursoðnir tómatar, 200 g

Rjómi 90 ml

Parmesan, 30 g

Súrdeigs baguette, 1 stk 

Mozzarella rifinn, 50 g 

Mozzarellakúlur, 10 stk

Tómatpúrra, 1,5 msk

Nautakraftur, 0,5 msk / Oscar

Herbs Provence, 2 tsk / Pottagaldrar

Breiðblaða steinselja, 5 g

Aðferð

Setjið vatn í pott ásamt ríflegu magni af salti og náið upp suðu. 

Hitið olíu á pönnu við meðalháan hita. Rífið Parma skinku í bita og steikið þar til hún er stökk. Geymið.

Hitið olíu á pönnu við meðalháan hita. Bætið hakki út á pönnuna og steikið þar til hakkið er fulleldað. Pressið hvítlauksrif út á pönnuna og steikið í stutta stund. Bætið við tómatpúrru, nautakraft og herbs provence. Steikið í stutta stund. Sneiðið ólífur og bætið út á pönnuna.

Bætið niðursoðnum tómötum og rjóma út á pönnuna. Rífið helminginn af parmesan ostinum saman við og látið malla undir loki á meðan pasta er soðið. Smakkið til með salti.

Bætið spaghetti út í sjóðandi vatnið og sjóðið í um 9 mín eða þar til spaghetti’ið er mjúkt en þó með smá biti (al dente). Geymið smá pastavatn ef þarf til þess að þynna sósuna.

Skerið brauð í tvennt og smyrjið með smá smjöri. Rífið svolítinn parmesan ost yfir og dreifið svo mozzarella osti yfir. Bakið í miðjum ofni á 200°C grill stillingu þar til osturinn er fallega bráðinn og gylltur. 

Bætið spaghetti út í kjötsósuna og blandið vel saman. Notið pastavatn til að þynna sósuna ef þarf.

Saxið steinselju hrærið saman við réttinn á pönnunni ásamt steiktri parmaskinku og mozzarellakúlum. Rífið restina af parmesan yfir.

Berið fram með góðu salati.

Vínó mælir með: Mucho Mas Tinto með þessum rétti.

Uppskrift: Matur & Myndir