![](https://www.vino.is/wp-content/uploads/2022/12/Hatidarhringur-37-1024x683.jpg)
Hátíðarhringur
Hráefni
Hindber 1 askja
Brómber 1 askja
Vínber græn
Marineruð hvítlauksrif (fást t.d í Krónunni)
Ólífur
Bónda brie x 3
Dóri sterki 1 pk
Salami
Hráskinka
Langir tannstönglar/aðrir kokteilpinnar
Ferskt rósmarín
Aðferð
Skerið hvern brie ost í 8 bita.
Skerið ostsneiðarnar í 3 hluta og rúllið hverjum upp.
Rúllið salamisneiðum upp/brjótið saman.
Rúllið hráskinkusneiðum upp/brjótið saman (skerið hverja í tvennt nema þið séuð með litlar sneiðar).
Raðið saman fjölbreyttum pinnum!
Raðið pinnunum síðan saman í hring og stingið rósmaríni hér og þar í hringinn til að skreyta.
![](https://www.vino.is/wp-content/uploads/2022/12/Hatidarhringur-41-683x1024.jpg)