Einföld nautasteik og meðlæti

Fyrir 2

Uppskrift

2 x Nauta ribeye steik

4 msk. soyasósa

4 msk. Worcestershire sósa

2 tsk. dijon sinnep

1 msk. ferskt timian (saxað)

Pipar

Ólífuolía til steikingar

 

Aðferð

Blandið soyasósu, Worchestershire sósu, sinnepi og timian saman í skál, hellið í poka og komið steikunum fyrir í pokanum.

Veltið kjötinu upp úr leginum og leyfið að liggja í pokanum við stofuhita í um 30 mínútur.

Hellið þá öllum vökva af og þerrið þær aðeins.

Hitið ólífuolíu á pönnu og steikið kjötið þar til það hefur náð þeim kjarnhita sem þið óskið. Piprið eftir smekk.

Ég tók steikurnar af pönnunni þegar kjarnhiti var um 48°, setti í álpappír og leyfi þeim að hvíla í honum þar til kjarnhiti var komin upp í um 56° (med-rare). Þá má taka álpappírinn af og leyfa þeim að standa örlítið lengur áður en þeirra er notið.

Kartöflur

Um 500 g kartöflur

50 g smjör

1 msk. ferskt timian (saxað)

Salt, pipar, hvítlauksduft

 

Aðferð

Sjóðið kartöflurnar þar til þær mýkjast.

Leyfið þeim aðeins að kólna, skerið þá í tvennt og steikið upp úr smjöri og kryddum þar til þær verða aðeins stökkar.

 

Bernaise sósa uppskrift

250 g smjör

4 eggjarauður

1 msk. Bernaise essence

1 msk. Oscar nautakraftur (fljótandi)

1 tsk. sítrónusafi

2 msk. estragon

Salt og pipar eftir smekk

 

Aðferð

Bræðið smjörið, leyfið því síðan að kólna niður á meðan annað er undirbúið. Smjörið á rétt að vera ylvolgt þegar því er hellt saman við þeyttar eggjarauðurnar (þá eru minni líkur á því að sósan skilji sig).

Þeytið eggjarauðurnar þar til þær verða léttar, ljósar og farnar að þykkjast vel.

Hellið ylvolgu smjörinu þá saman við í mjórri bunu og hrærið á lægsta hraða á meðan það blandast saman við.

Bætið næst öðrum hráefnum saman við og hrærið saman, smakkið til og kryddið eftir smekk.

Vínó mælir með: Muga Reserva með þessum rétt. 

Uppskrift: Gotteri.is