Djúpsteiktir ostabitar

 

Um 20 bitar

 

Hráefni

2 x Dala hringur

50 g hveiti

2 pískuð egg

60 g Panko rasp

1 msk. söxuð steinselja

Salt og pipar

Um 300 ml olía

Chilisulta

Aðferð:

Skerið ostinn í bita (um 10 bita hvern).

Setjið hveiti í eina skál, pískuð egg í aðra og Panko, steinselju og salt og pipar í þá þriðju.

Dýfið hverjum ostabita fyrst upp úr hveiti, dustið það vel af og þekjið næst vel með eggi og loks vel af Panko.

Raðið á bökunarpappír á bakka og setjið í frystinn í eina klukkustund áður en þið steikið (svo hann leki ekki út um allt við steikinguna).

Hitið olíu í djúpri pönnu og hafið það mikið af olíu að hún nái upp hálfan ostbita, steikið þá síðan í vel heitri olíunni í um 1-2 mínútur á hvorri hlið eða þar til þeir eru gullinbrúnir.

Leggið á eldhúspappír svo olían leki vel af, raðið svo í skál og njótið með chilisultu.

 

Vinó mælir með: Stella Artois með þessum rétt.

Uppskrift: gotteri.is

Share Post