Ristretto Martini

 

Hráefni:

30 ml Galliano Ristretto

30 ml Vodka

30 ml espresso kaffi

Klakar

 

Aðferð:

Uppskriftin miðast við 1 drykk, tvöfaldið ef þið viljið gera tvo drykki.

Hellið upp á espresso kaffi (mjög sterkt kaffi) og kælið það, gott að geyma inn í ísskáp í 30 mín eða setja kaffibollann í klakabað (ath ekki setja klaka í kaffið því þá þynnist það út)

Fyllið kokteilhristara af klökum og setjið Galliano Ristretto í hristarann ásamt vodka og kaffinu. Hristið mjög vel og lengi svo það myndist flott froða.

Hellið úr kokteilhristaranum í gegnum sigti ofan í glasið.

 

 

Uppskrift: Linda Ben